Bókin um líf mitt
Paperback, 550 pages
This item has not been rated yet
Ships in 3–5 business days
Þegar Teresa hóf að skrifa Bókina um líf mitt var hún fast að því fimmtug að aldri og hafði sannreynt áhrif hinnar yfirskilvitlegu náðar í því sem næst tíu ár. „Langtímum saman vissi ég ekki til hvaða orða ég ætti að grípa til að varpa ljósi á náðargjafir Guðs, þrátt fyrir að hann auðsýndi mér þessa náð. Þetta var alls ekki svo lítil þolraun“ (kafli 12, 6). Hún þarfnaðist enn meiri náðar til að geta varpað ljósi á það sem bar fyrir hana með tilhlýðilegum hætti. Síðar komst hún að raun um að „það er náð þegar Drottni þóknast að gefa okkur hlutdeild í þessari gjöf sinni, en allt annað að skilja hvers eðlis þessi blessun er“ (kafli 17, 5). Í Bókinni um líf mitt auðnast henni að greina frá yfirskilvitlegri reynslu sinni með aðdáunarverðum hætti.