Nú hefur Jóhannes af Krossi öðlast viðurkenningu fyrir ljóð sín um allan heim. Um 300 ár liðu áður en hann naut almennrar viðurkenningar. Í athugasemdum sínum um ljóð Jóhannesar kemst Dámaso Alonso svo að orði,að hann sé mesta skáld Spánar. Rétteins og tíðkaðist í spakmælasöfnum
eyðimerkurfeðranna leggur hann kenningar sínar fram með hnitmiðuðum hætti í Orðum ljóss og elsku. Varúðarráðstafirnar samdi hann sem leiðsögn fyrir karmelsysturnar í Beas. Leiðbeiningar fyrir reglubróður og Stiga fullkomleikans samdi hann fyrir ókunnan reglubróður. Í Bréfasafninu birtist
hann okkur með ljóslifandi hætti sem hjartahlýr og árvökull andlegur... More > faðir.< Less